6.2.2008 | 10:42
Jæja!!!
Dagurinn í gær, já ég fór með ormana til Dr og voru þau bæði sett á pensílín, ekki sömu tegund. Erla fékk sterkan pensílín kúr sem hún á að taka í 3 daga og vildi hún fá í fljótandi formi, getur ekki tekið töflur, hún hreinlega kemur þeim ekki niður. Dr hlustaði hana og heyrði e-h hægra megin en það var ekki slím þannig að það var hægt að útiloka lugnabólgu en e-h asma tengt og ákvað að setja hana á sterkan kúr. Hún er ekki lík sjálfri sér í andliti, komin með bauga og er hvít en borðar eins og hestur og er á fullu alla daga, hún er og hefur alltaf verið með vel útitekið andlit.
Birgir fékk líka pensílín, hann er með ljóta vörtu undi hægri ilinni og er komin sýking í hana og pantaði hann töflur, hann getur kyngt þeim eins og ekkert sé. Hann fór í sitt blóð tékk í morgun, var vakin klukkan 7,30 og sett á hann 2 stk dreyfiplástra og fór klukkan 8 á bóðprufu og heyrist ekki púst í honum á meðan því stendur þó að það hafði þurft að stinga í báða handleggi, fyrsta stunga gaf ekkert blóð en seinni gaf sitt. Hann kom mér svo í sjúkraþjálfun, borðaði morgunmatinn sinn á meðan og síðan fylgdi ég honum í skólan.
Það var sko stuð í skólanum, verið að mála krakkana, allir í búningum og spennt fyrir deginum. Erla fór í norna/skratta búning og Birgir í slökkviliðsbúning, vonandi eiga ormarnir mínir góðan dag, það var erfitt að kveðja þau í skólanum, hitti þau ekki fyrr en á laugardaginn.
Tók myndir af þeim í skólanum áður ég kvaddi þau, flott ekki satt!!!!!!!!!!! elska þau big time. Tók þessar myndir með símanum.
Knús kveðja frá mér til þín.
Tenglar
Áhugavert fólk
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æji littlu gullin ekki gott,en vonandi ná þau sér og það er eins gott fyrir birgir að vera slökkvuliðsmaður það gæti kvikknað í púkanum henni ErluEn knús og kossar til ykkar kv Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 6.2.2008 kl. 20:19
Flottir búningar og flottir krakkar, vonandi batnar þeim báðum fljótt
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.2.2008 kl. 01:33
Sumardagurinn fyrsti og þar í kring er fínt. Svona síðasti séns fyrir mig að fara út áður en prófatörn hefst.
Þar sem meirihlutinn á mínu heimili er búinn að vera veikur þá er ég ekki ennþá búin að hringja í Sif
Védís (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 14:22
Þau eru bara yndisleg
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 10.2.2008 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.